Rauðar Hauka - hettupeysur

Foreldraráð er að setja af stað sölu á rauðum hettupeysum sem merktar eru Haukunum með stóru logoi framan á þeim og nafni einstaklingsins á erminni.Það er í boði að setja nafn einstaklinganna á peysuna eða t.d. Haukapabbi eða Haukamamma -amma eða -afi.

Hver barna peysa kostar 5000 kr. og fullorðins 5500 kr. af því rennur 1000 kr. í sameiginlegan sjóð strákanna fyrir sumarið. 

Á morgun, fimmtudag 20 febrúar verður hægt að máta peysurnar og panta. Einnig er hægt að panta í tölvupósti 7kkhaukar@gmail.com. Þá þarf að koma fram, stærð og hvað á að merkja á ermi á hverri peysu. Við verðum staðsett hjá borðunum milli afgreiðslunnar og vatnbrunsins frá 17.00 til 18.15.

-Það er í boði fyrir alla að panta, ekki bara strákana úr flokknum, systkini, mömmur og pabbar, frænkur og frændur og jafnvel vini. 

Hægt er að panta peysurnar til 27. febrúar á tölvupósti 7kkhaukar@gmail.com eða hjá Grétu og Karólínu, pöntun verður send af stað 28. febrúar. 

                                                                                                                Með kveðju Foreldraráðið

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.