Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2013

Skráninga í Arionbankamóts Víkings

Sæl verið þið,
 
Arion banka mótið í fótbolta verður haldið helgina 17.-18. ágúst 2013 í Víkinni í Fossvogi.  (Strákarnr eru þó bara að spila annan daginn).  Allir flokkar verða með 5. leikmenn inn á í hverju liði. Gert er ráð fyrir því að hvert lið sé 3 klst. á svæðinu að spili 4. til 5. leiki, engin úrslit eru skráð heldur taka allir þátttakendur á móti verðlaunapening og gæða sér á gómsætis hamborgarmáltíð frá Grillhúsi Andabæjar ásamt því fá glæsilegan Disney glaðning frá Arion banka.
 
Við erum búnir að skrá 6 lið til leiks en þið þurfið að láta vita hérna á blogginu hvort ykkar drengur ætlar að mæta (líka þeir sem voru búnir að gefa jákvæð svör í fyrri bloggum).  Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir (líka þeir sem eru nýbyrjaðir, en það þarf bara að vera búið að ganga frá skráningu í flokkinn).
 
kv, Þjálfarar 
 
Hér að neðan er linkur um mótið: 

Smá frí í kringum verlsunarmannahelgina og nokkrir aðrir punktar

Sæl verið þið,

Við munum ekki taka sérstakt KSÍ frí í sumar og því eru æfingar í hverri viku.  Við ætlum þó að hafa aðeins lengra frí í kringum Verslunarmannahelgina og því verður frí á æfingum fimmtudaginn 1. ágúst og þriðjudaginn 6. ágúst (það verður því aðeins lengra helgarfrí).  Við höfum verið mjög vel mannaðir upp á síðkastið en næstu tvær-þrjár vikur verður þó eitthvað um sumarfrí hjá okkur þjálfurunum.

Við erum búnir að skrá strákana á Arionbankamótið sem er haldið helgina 17. - 18. ágúst (skráðum 6 lið, en það er spilað í 5 manna bolta).  Mótið fer fram í Víkinni í Fossvoginum.  Við ætlum svo aðeins að sjá til með hvort við skráum strákana til leiks í mótið hjá Aftureldingu sem er haldið 31. ágúst - 1. sept.

Varðandi færslu á milli flokka þá er ekki komin endanleg dagsetning á það en það verður í kringum mánaðarmótin ágúst/september.  Ég læt ykkur vita þegar nákvæm dagsetning er komin

Það hafa nokkrir nýir verið að mæta á æfingar og hvet ég þá til að skrá sig í Haukana í gegnum íbúðargáttina.  Ef þið lendið í vandræðum er hægt að vera í sambandi við Bryndís en póstfangið hjá henni er bryndis@haukar.is

Það var svo gaman að sjá hvað það voru margir af strákunum sem mættu á síðustu tvo heimaleikina hjá Haukunum (og tóku mömmu og/eða pabba með sér).  Vill því benda þeim sem verða ekki komnir í útilegu að næsti heimaleikur Haukanna er miðvikudaginn 31. ágúst kl. 19:15 þar sem Haukarnir mæta Selfoss. 

ÁFRAM HAUKAR

Sigmar 


Norðurálsmótið 2013 - Myndir

Póstur frá mótsstjórn Norðurálsmótsins 
 
Sælir tengiliðir og þjálfarar.

Takk fyrir ánægjulegt mót og frábæra þátttakendur og gesti.

Við erum búin að koma myndunum frá mótinu á heimasíðuna, bæði liðsmyndunum og keppnismyndunum.  Allir geta skoðað þær þar í skjágæðum, slóðin er http://www.kfia.is/norduralsmot/myndasafn/.
Vinsamlegast komið póstinum áfram á alla foreldra og forráðamenn, sem áttu keppendur á mótinu.

-- 
Með kveðju, mótsstjórn Norðurálsmótsins 2013

Smá fréttir af starfinu!

Sæl verið þið,

Langar bara aðeins til að senda ykkur smá fréttir af starfinu.  Það er greinilegt að það eru margir í sumarfríum þessa dagana og því færri strákar en ella á æfingum. Það hafa nokkrir nýir verið að mæta og mega foreldrar þeirra endilega heyra í mér upp á skráningar.  

Við vorum að reyna að fá eitthvað lið í heimsókn til okkur en það er sama sagan hjá öðrum félögum og því ætlum við aðeins að setja þetta í bið.  Það er hins vegar mót framundan í ágúst.  Ég er búinn að skrá strákana til leiks á Arionbankamót Víkings sem fer fram annað hvort 17. eða 18. ágúst.  Mótið er báða dagana en hver drengur spilar bara annan daginn.  Eins er búið að bjóða okkur á mót hjá Aftureldingu sem fer fram 31. ágúst - 1. september.  Ég er ekki búinn að skrá þá til leiks þar en vildi hlera ykkur með hvort það sé áhugi fyrir því að fara á tvö mót með stuttu millibili.  Þið megið því endilega láta vita hérna á blogginu ef þið hafið áhuga á báðum þessum mótum.  (rétt að benda á að ég er búinn að skrá okkur til leiks á Arionbankamótið en ekki hitt).  Kostnaður við hvort mót per iðkenda er kr. 2.000.  Spilað í 5 manna bolta í í báðum mótunum (uppfært, hafði fengið upplýsingar um annað fyrr í morgun).

Ég vill svo benda á mikilvægi þess að strákarnir mæti á réttum tíma á æfingu.  Það getur nefnilega truflað æfinguna og uppsetningu hennar ef margir eru að mæta of seint.  Þið megið endilega ítreka þetta við strákana.

Að lokum ætla ég svo að benda ykkur á að Haukarnir eru í 2. sæti í 1. deildinni og því í smá séns að komast upp.  Hvet því strákana til að mæta á leiki hjá liðinu (og draga mömmu og/eða pabba með sér :-) ) og hvetja liðið.   Það eru tveir heimaleiki í næstu viku, gegn Völsungi á þriðjudaginn 16. júlí kl. 19:15 og svo á móti Þrótti R. á föstudaginn 19. júlí kl. 19:15.

Áfram Haukar

Sigmar 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.