Rauðar hettupeysur merktar Haukum og nafni

Foreldraráðið hefur ákveðið að setja af stað sölu á rauðu hettupeysunum með Hauka logoi og nafni. Við vorum líka með þessr peysur í fyrra og voru mjög vinsælar.

Gaman fyrir alla að vera eins á mótum, það skapar heild.

Barnapeysan kostar 5000 kr. og fullorðins 5500 kr. Peysurnar koma í st. xs uppí XL í barna og sömu stærðir í fullorðins.

Mátun verður í boði á Sunnudaginn í Kaplakrika á meðan á æfingu stendur. Því væri gott að gefa ykkur tíma rétt fyrir æfingu, á meðan á æfingu stendur eða stutt eftir æfingu að kíkja á peysurnar, skoða og auðvitað panta sé áhugi fyrir því.

Við tökum pantanir út vikuna, áætlað er að peysurnar verði tilbúnar í byrjun Mars. Greiða þarf fyrir peysurnar áður en pöntun er send frá okkur.

Fyrir hönd foreldraráðið

Karólína Helga og Gréta Rún

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er hægt að máta og panta peysu eitthvern annan dag?, komumst ekki á sunnudaginn. 

fridrikka (IP-tala skráð) 20.2.2015 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.