Norðurálsmótið liðsmyndir
13.8.2014 | 10:09
KEPPNISMYNDIR 2014
Á föstudeginum tóku ljósmyndarar mótsins myndir af af keppninni og öðru sem vakti áhuga þeirra.
Þessar myndir er hægt að skoða í tímaröð í skjáupplausn, á þessari slóð:
https://drive.google.com/folderview?id=0Bx-XlL1w1evBczlWWnI3dG55TVU&usp=sharing
Þeir sem vilja eignast KEPPNISMYND í fullum gæðum, geta fengið tölvuskrána á þennan máta:
1. Finnið númer (eða heiti) á myndinni sem þið óskið eftir.
2. Greiðið 1000 kr fyrir hverja mynd inn á bankareikning 0552-14-400883 kt. 500487-1279.
3. Látið senda kvittun um greiðslu með númeri myndarinnar í skýringum á netfangið myndir@kfia.is.
4. Sendið tölvupóst á netfangið myndir@kfia.is, með nafni greiðanda, símanúmeri og númeri myndar.
5. Innan 2 vikna verður skráin með keppnismyndinni send í tölvupósti í fullum gæðum á netfangið sem pöntunin barst frá.
Þeir sem vilja KEPPNISMYNDIR útprentaðar á pappír, bæti við 500 kr. fyrir hverja mynd og sendi einnig heimilisfang sitt. Innan 2 vikna verður prentaða KEPPNISMYNDIN send með pósti á heimilisfangið sem gefið er upp.
LIÐSMYNDIR 2014
Liðsmyndir af hverju keppnisliði voru teknar á föstudeginum niður við Aggapall.
Þessar myndir er hægt að skoða í skjáupplausn með númeri, skipt eftir félögum, á þessari vefslóð:
https://drive.google.com/folderview?id=0Bx-XlL1w1evBcTNHdExYNFNfMGM&usp=sharing
Þeir sem vilja eignast útprentaða LIÐSMYND í fullum gæðum af liði sínu, geta fengið myndina á þennan máta:
1. Finnið númer (eða heiti) á myndinni sem þið óskið eftir.
2. Greiðið 2000 kr fyrir hverja mynd inn á bankareikning 0552-14-400883 kt. 500487-1279.
2. Látið senda kvittun fyrir greiðslu með númer myndanna í skýringum á netfangið myndir@kfia.is.
3. Sendið tölvupóst á netfangið myndir@kfia.is með númeri mynda, nafni greiðanda, heimilisfangi og símanúmeri.
4. Innan 2 vikna verður prentuð liðsmynd send með pósti á heimilisfangið sem gefið er upp.
Liðsmyndir 2011 til- 2013 eru einnig til. Sendið fyrirspurn á sama netfang: myndir@kfia.is.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.