Foreldrafundurinn áðan
20.3.2013 | 22:01
Komið þið sæl,
Það var fín mæting á fundinn áðan og hér að neðan koma helstu niðurstöður:
- Það var skipuð foreldrastjórn og mun hún sjá um skipulagningu á því hvernig við högum mótinu. Þeir sem voru skipaðir eru: Ragnheiður (mamma Sindra), Halldóra (mamma Pálmars), Laufey (mamma Þorvaldar), Sigurjón (pabbi Ólafs Darra), Brynjar (pabbi Birkirs) og Heiður (mamma Sörens). Ég vona að ég sé að fara með öll nöfnin rétt hérna að ofan en þið látið mig vita ef ég er að gleyma einhverjum eða setja einhvern í nefndina sem ætlaði ekki að vera þarna. Það væri svo gott að fá sendan tölvupóst frá þessum aðilum svo ég geti sent á ykkur og við getum svo haft fyrsta fundinn í næstu viku.
- Það sem þessir aðilar þurfa að skoða eru fjáröflun ásamt öðru sem viðkemur skipulagningu á mótinu. Eins kom upp hugmynd að skoða þann möguleika að fá peysur/treyjur á strákana.
- Mér fannst vera vilji fyrir því að strákarnir myndu gista í skólanum en ef foreldrar eru á svæðinu þá mega strákarnir gista hjá þeim. Við þurfum því að hafa fararstjóra fyrir hvert lið. Það var vilji til þess að virkja sem mest alla sem eru á svæðnu enda er þetta auðveldara ef fleiri eru að dreifa verkefnunum á milli sín. Mér sýnist það ekki vera neitt vandamál að gera það enda flestir sem höfðu áhuga á því. Þeir sem eru búnir að minnast á það við mig að þeir getir tekið að sér fararstjórn eru: Ragnar Ingi (pabbi Jörundar), Gunnur (mamma Gunna og Krumma), Sveinn Óli (pabbi Huga) og Arndís (mamma Alexanders). Þetta eru þeir sem ég man eftir í augnablikinu en voru líklegast eitthvað fleiri.
- Ég er búinn að skrá 5 lið og greiða staðfestingargjaldið sem er samtals kr. 70.000. Við þurfum því fljótlega að fá á hreint hverjir ætla að fara og að þeir greiði eitthvað staðfestingargjald. En við skoðum það betur síðar. En þið megið endilega svara hérna á blogginu hvort ykkar drengur sé að fara á mótið eða ekki.
- Annað sem við ræddum svo var að það eru tvö mót í maí, KFC mót Víkings (4.-5. maí) og Vís mót Þróttar (25.-26. maí) en bæði þessi mót eru þó bara annan daginn.
- Eins minntist ég á að það væri gaman að hafa eitthvað félagslegt í apríl, t.d. sund eða bíó. En nýskipuð nefnd mun skoða þetta.
- Að lokum vill ég svo benda á að síðasta æfing fyrir páskafrí er sunnudaginn 24. mars. Þessi æfing verður ekki í Risanum heldur á Ásvöllum. Fyrsta æfing eftir páskafrí verður svo miðvikudaginn 3. apríl.
Kveðja,
Sigmar
Athugasemdir
Hugi fer á Norðurálsmótið
Sveinn Óli (IP-tala skráð) 20.3.2013 kl. 22:17
Pálmar(Palli) fer á Norðurálsmótið. Kv. Halldóra
Halldóra Pálmarsdóttir (IP-tala skráð) 20.3.2013 kl. 22:35
Birkir Bóas ætlar að mæta
Rósa (IP-tala skráð) 20.3.2013 kl. 23:07
Eyþór Hrafn ætlar að mæta.
Þórey (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 08:49
Gunni og Krummi mæta ferskir ;)
Gunnur Kristín (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 09:35
Ég vil gjarna skrá Sigfús Kjartan Nikulásson á Norðurálsmótið. Við komumst því miður hvorugt á fundinn í gær en viljum að sjálfsögðu taka þátt í undirbúningi eða því sem þarf fyrir mótið.
kveðja
Sigrún
Sigrún Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 10:04
Sæll Alexander Þór mætir :)
arndis ósk (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 11:14
Jörundur Ingi fer á mótið.
Ragnar Ingi (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 14:16
Því miður kemst Þorsteinn Ómar ekki á Norðurálsmótið og er hann mjög leiður yfir því:( en við verðum ekki heima, en vonandi eru önnur mót sem hann getur tekið þátt í:)
Kv Særún
Særún (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 16:11
Ásgeir Bragi ætlar að fara á Norðurálsmótið.
Anna María Bryde (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 17:54
Dagur Orri ætlar á Norðurálsmótið. Við Villi ætlum einnig að fara og viljum gjarnan hjálpa til ;)
Thelma (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 21:10
Svanbjörn verður með:-)
Bárður Jón Grímsson (IP-tala skráð) 21.3.2013 kl. 21:41
Ævar Örn mætir á mótið
Marel (IP-tala skráð) 22.3.2013 kl. 09:38
Ólafur Darri mætir
Guðrún Sunna (IP-tala skráð) 22.3.2013 kl. 09:53
Andri Steinn Ingvarss. ætlar á mótið.
Ásdís (IP-tala skráð) 22.3.2013 kl. 10:21
Sigurður Sindri ætlar á Norðurálsmótið :)
Aldís Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 22.3.2013 kl. 11:30
Sören Cole ætlar á mótið.
Heiður (IP-tala skráð) 22.3.2013 kl. 21:15
Þorvadur ætlar a motið
Laufey Þorvaldsdottir (IP-tala skráð) 23.3.2013 kl. 20:33
Alonso Karl er til í Norðurálsmótið.
Árný Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2013 kl. 21:05
Sindri Már ætlar að vera með
Ragnheiður Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.